Ég heiti Sigurður Ingi
Ég fékk mína fyrstu myndavél árið 2016 byrjaði einsog flestir að taka landslagsmyndir ásamt því að mynda fjölskyldu og vini. Á stuttum tíma fann ég að ljósmyndun var einhvað sem ég vildi breyta frá áhugamáli yfir í atvinnu.
Ég byrjaði árið 2019 að mynda í studio sem ég setti upp heima hjá mér og snjóboltinn byrjaði að rúlla
Sama ár fór ég að mynda brúðkaup og þar fann ég það sem ég vildi vinna við í framtíðinni.

Lífið snýst allt um fólk, augnablik og tilfinningar sem við viljum halda í..
Brúðkaupið þitt snýst allt um þig, fjölskyldu þína og kæru vini. Vertu þú sjálf. Sýndu skemmtilegan, einstakan persónuleika þinn. Gerðu það sem gleður þig. Hlæðu hátt. Kysstu hægt. Knúsaðu þétt.
Ég mun vera til staðar til að fanga þetta allt og hjálpa þér að geyma þessar fallegu minningar fyrir lífstíð.